Velkommen
20.09.2007 20:16:50 / edda

Blessuð

Já ég hreinlega ákvað að blogga smá en samt bara smá bara til að láta vita af mér. En ég er nú ekki alveg að fatta af hverju ég er að þessu þar sem það les þetta hvort sem er enginn... 

Já annars  er ekki mikið að frétta af mér þar sem ég geri ekki neitt nema vinna. Ég sakna Laugarvatns alveg griðalega mikið og tala ekki um þegar ég les bloggið hjá þeim á vatninu góða þá langar mig til að fara að grenja.  En tíminn minn þar er víst búin og ég verð að reyna að sætta mig við að verða fullorðin.

Mér finnst alveg rosalega skrítið að vera ekki í skóla enda hef ég verið í skóla nánast allt mitt líf eða 19 ár. Og núna er maður bara búin og hvað þá??? Hugsa hvað ég get lært meira.  

Skólinn sem ég er að kenna í er æði og held ég að ég geti ekki fundið betri stað til að kenna á ef ég ætla mér að kenna. Ég er búin að læra nöfnin á öllum nemendunum, kannski ekki erfitt þar sem þau eru bara 63.  Kennararnir eru líka frábærir eins og ég segi ef ég ætla mér að kenna þá er þetta staðurinn. 

  Ég veit ekki hvað ég á að skrifa meira   

Kveðja

Línberg


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.05.2007 23:53:32 / edda

Svona er þetta

Já það er komið að því. ÉG er búin með skólann og er að fara að flytja frá þessum indislega stað. Núna er það bara að pakka öllu dótinu mínu niður og flytja.  Ég get ekki lýst þessari tilfinningu,  ég er ekki tilbúin til að fara og vildi að ég væri bara á 1 ára enn þáJ   

Við erum samt að tala um að næsta sunnu dag verð ég á leiðinni til Mexíkó og það verður geðveikt..... ég tóka manninn minn með til að borga allt.. já vissuru ekki að ég er búin að finna mér nýjan mann hann heitir MASTERKARD.. ég á nú þokkalega eftri að nota hann þarna úti.  Já þessi ferð verður bara snild og núna er það bara að græja sig fyrir hana. Ég byrja að borða laxerolíu á morgunn, þar sem ég gleymdi alveg að fara í bikiní megrun... nei djók en ég þarf allavega að fara í litun og plokkun, lita á mér hárið, vaxa öll hár af og tala ekki um að laga á sér neglurnar... já líka á tánum. Þá ætti  ég að vera búin að gera það sem hægt er að gera á viku. Nei ég á víst líka eftir að kaupa eitthvað helvítis bikiní sem ég þarf svo að vera í.

Næsta vika fer sem sagt í það að pakka dótinu í íbúðinni níður til að geta sent það norður,  græja leikjaskólann ( það sem ég get gert) þar sem  hann verður byrjaður þegar ég kem heim. Svo verð ég náttulega að  pakka niður fyrir MEXÍKÓ, halda kveðjuparý fyrir Katrinu og svo setja neglur á gellurnar svo við verðum nú allar nógu fínar á tánum í sandinum.       

Svo þegar ég kem heim frá útlandinu er bara tekið flug norður og beint í leikjaskólann minn og svo bara koma sér fyrir í nýja íbúinni minni J

 Já fyrir þá sem ekki vissu þá er ég sem sagt búin að kaupa mér íbúið á  Svalbarðseyri... já ég sagði Svalbó citty ég er nátturlega stöndungur í húð og hár. ÉG er að flytja í sömu götuna á svalbarðseyir í 3 skitpi og í sama húsið í 2 skipti.  

En jæjja ég ætla að fara að gera eitthvað að viti.... kannski bara sofa

Kveðja

Línberg


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.04.2007 20:37:49 / edda

bráðum búið

Hæ vildi bara láta vita að ég er ekki enn kominn inn á klepp:)

en stend alveg á haus

 

En vona nú að ég eigi eftir að ná að klára þetta

Bara 3 verkefni eftir 3 próf og lokaritgerðin...... og bara 26 dagar í MEXIKO

Bless farinn að læra

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.03.2007 23:36:59 / edda

Smá blogg

hei ég veit að ég er ekki dugleg að blogga :)

Það er ekki mikið að frétta af mér.... ekki enn búin að finna mér mann, ef einhver veit um hinn fullkomna mann handa mér má hann láta mig vita sem fyrst.. því það er alveg ljóst að ekki gegnur mér vel að finna hann sjálf:(  

Ég veit samt ekki alveg hvar ég ætti að finna tíma til að sinna einhverjum kalli þessa dagana þar sem að það er bara brjálað að gera í skólanum og vona ég bara að ég endi ekki inni á kleppi.

Eins og ég segi þá hef ég ekki tíma í að blogga og hef þetta ekki lengra:(

Og ein spurning í lokinn sem ég fékk um daginn

Veistu hvað þýðir að sleikja puttan á þér?

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.01.2007 20:15:25 / edda

Ó MY GOD

Ok annað blogg núna á stuttum tíma...það er ekki af því að ég er svona dugleg heldur hef ég ekkert að gera nákvæmlega núna :):):).

 

Þetta skrifaði ég 20.01.2006

Og svo eitt í lokinn áður en ég hætti vill einhver gefa mér góða útskíringu á því hvernig barna kemst inn í magann á konu eða verðu til... ég fékk þessa spurningu um daginn og ég svaraði: ef kona og kall elska hvort annað mjög mikið og kyssast mikið þá verður barn til.... þá er spurt hvernig?? Ég útskíri að kona er með egg og kall eitthvað sem heiti sæði og þegar það hittist verður til barn..... það er spurt hvernig kemst það í gegnum skinnið???? Og ég get nú ekki alveg útskýrt en reyndi eitthvað en gat samt ekki alveg......

Svona er barnið manns nú orðið gamalt og farið að spyrja spurninga sem ég hélt að ég þyrfti ekki að svara alveg strax....

 

Núna ári seinna eða 11 janúar 2007 (í gær) lenti ég í ansi skemmtilegum umræðum.. sem ég var ekki alveg viðbúin.. en svona er nú lífið óútreiknanlegt.

 

Ég Katrín og vínkona hennar (sem er 2 árum eldri en hún) erum á leiðinni heim úr sundi. það er svona leikur þær eru að gera eitthvað og ég segi hvað þær eru að gera t.d sparka í rass, breika og svona. NEMA svo er Katrín að gera eitthvað sem ég sagðist ekki vita hvað væri og segir þá ,,er þetta kannski að ríða”

Ég: ha

Katírin: er þetta kannski að ríða?

Ég: hver kenndi þér þetta?

Katrín benti á vínkonu sína og þær hlógu

Ég spurði þær hvort þær vissu hvað þetta þýddi og sögðust vita það og deildu smá um hver ætti að segja mér hvað þetta þýddi á endanum fæ ég svar

Katrín: tippi inn í buddu

Ég: já há

Katrín: þú og pabbi gerðu það

Ég: HA nei

Katrín. Annars væri ég ekki til

Ég samþykkti að hafa gert það einu sinni fyrir mögum árum (7 árum) og hún hafi verið til þá. Svo fór vínkona hennar heim og við héldum áfram að labba heim til okkar.

Nei Nei þetta er ekki búið

 

Ég: var vínkona þín að kenna þér þetta

Katrín: já við sáum sko mynd.... það var stelpa sem átti kærasta, hún hætti með honum og hitti annan strák og þau fóru svo inn í herbergi að ríða

Ég: SÁU ÞIÐ ÞAÐ?

Katrín: Nei... En strákurinn setti samt eitthvað á sig svo að stelpan myndi ekki verða ólétt.... einhvern svona poka

Ég: já svona poka

Katrín: En mamma hvað þarf að gera þetta oft til að maður eignast barn

Ég: 1 sinni til að eignast eitt barn og 2 sinnum til að eignast tvö börn

Katrín: Þá þarft þú að gera það 2 sinnum í viðbót með nýja kærastanum þínum... því að þú ætlar að eignast tvö börn í viðbót.

Ég: já

Katrín: hvað er ég á meðan

Ég: Hjá ömmu þinni

Katrín: Má ég ekki horfa á

Ég: Nei

Katrín: Af hverju ekki mamma ég er nú dóttir þín

Ég: Af því bara

Katrín: Mamma ,,af því bara” er ekki svar

Ég: Það horfir engin á svona

Katrín: ok en þú verður að láta mig þegar þú ferð að gera þetta.... eða ætlar þú kannski að koma mér á óvar og vera bara ólétt

 

Ég sagði að ég myndi koma henni á óvart.. svo afganginn á leiðinni heim útskírði ég að maður geri ekki svona nema með kærasta sínum og maður þurfti að vera orðin 18 ára. Hún var nú fljót að reikna að Ólöf frænka hennar mætti þá ekki gera það fyrr en eftir tvö ár. Og ég er að fatta núna að einhvertímann þarf ég að útskíra hvernig ég varð ólétt 17 ára...

 

Eins og ég segi þá verð ég farinn að ferma áður en ég veit af...... en mér fannst þetta svolítið skondið en það kemur alltaf sá tími sem maður þarf að ræða þessa hluti þó svo að ég hellt að það yrði ekki strax.  

 

Kveðja

Línberg

 

 

 

 

 

 

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

09.01.2007 23:40:26 / edda

Góða kvöldið Núna er ég ekki búin að skrifa neitt í um hálft ár....kemur á óvart þar sem ég er eða var svo duglegur bloggari :( :( Ef einhver heldur að ég hafi verið upptekinn við að sinna manninum mínum þá er það ekki rétt því ég er ekki enn búin að finna hann..... ég er farinn að halda eða kannski frekar hrædd um að ég eigi bara eftir að pipra....

En piparjúnnka nr 1 er núna kominn á Laugarvatnið góða eftir jólafrí þar sem ég var á hótel mömmu:) Þetta er síðasta önnin mín hérna og ég er ekki alveg að sætta mig við það.. vildi að ég ætti svona tvö ár eftir.... en svona er þetta, tíminn líður og bráðum verð ég orðin íþróttafræðingur. Þá er það bara stóra spurningin hvað ég ætla að læra meira, hvar ætla ég að búa, eða hvað ætla ég að fara að gera?????. Ég er búin að vera í skóla í 19 ár og ég þori ekki að hætta. En ég fæ alltaf hausverk þegar ég hugsa um þetta.

En já þessi síðasta önn mín verður mjög erfið og verð ég að vera dugleg að læra, og líka djamma og svo endum við önnina á því að fara í útskriftaferð til MEXIKO það verður geðveikt gaman:P:P. En ég er búin að skrifa nóg held ég.. það les þetta hvort sem er enginn. Nema ég

Kveðja Línberg ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.06.2006 21:07:35 / edda

hæbb

Ok ég veit að ég er ekki búin að skrifa neitt upp á síðkastið... það er nú ástæða fyrir því skal ég segja þér..... það hefur bara ekkert verið að gerast hjá mér til að skrifa um. Eina sem ég geri er að vinna, borða og sofa. Nei reyndar er eitt enn sem ég tók mér fyrir hendur.. já ég veit að kraftaverkið gerast!!!!  En ég er byrjuð eða er búin að vera 2 vikur í boot camp. Þetta er geggjað gaman og vel erfitt.. ég skal allavega segja þér það að ég myndi aldrei geta pínt mig svona alein einhverstaðar.. ég er svo góð við sjálfan mig... en já marki miðið er að koma sér í form ekki veitir af.. áður en maður verður orðin eins og bolti....

 

 



Eins og  ég segi þá hef ég ekki frá miklu öðru að segja.. það er ekki neitt búin að breytast hjá mér (ég er enn ekki gift) nema það að dóttir mín er víst orðin 6 ára... ekki neitt smá stór. Og hún fékk líka svona flott trampólín í afmælisgjöf frá mömmu sinni og ömmu.  Og var hún mjög ánægð með það... en vanda málið er bara að hún vill fara með það á Laugarvatn sem ég sé ekki alveg hvernig ég ætla að geta... en það er nú seinnitíma vandamál.

 

 



 Núna ætla ég að fara að koma mér í rúmmið (þegar ég er búin  að setja smá lit á augabrúnirnar) því það er ræs kl 5:50 í fyrramálið.... ekki má ég verða og sein í þennan blessaða tíma minn því þá fæ ég bara refsingu...

 

 



Kveðja

Línberg   


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.05.2006 00:02:16 / edda

:) :) :)

Góða kvöldið

 

 



Já ef þig langar að vita hvað ég hef verið að gera síðan ég bloggaði síðast þá er það nú aðalega að vera bissí að gera ekki neitt.. nei ég ýki kannski nú aðeins. Eftir að ég var búin í prófunum þá var ég eina viku í borginni og var það svolítið skrítið að eiga svona smá frí.... ég held að ég hafi aldrei átt svona pínu sumarfrí enda alltaf byrjað að vinna leið og ég er búin í prófunum. En já ég og Katrín vorum semsagt bara eitthvað að dúlla okkur í borginni, aðalega að eiða peningum sem ég á ekki. En það er svo sem ekki neitt nítt.

 

 



Ég brunaði svo norður á núna á föstudaginn og myndi ég segja að ég sé búin að hafa nóg að gera síðan... það fyrsta sem ég gerði náttúrlega á laugardagsmorgnunum var að mæta í vinnu í búðina mín.... ég vinn bara þar mér til ánægju, ég held að ég eigi aldrei eftir að hætta..... nei og svo er ég búin að vera að setja á neglur á fullu, nema ekki á sjálfan mig enda er ég að niðurníslum kominn sem sagt ekki með neglur, ekki litað hár, ekki augabrúnir og hvít í þokkabót sem segir manni að ekki sé furða að maður eigi ekki mann.......Nei djók ég var búin að gleyma því að ég þarf ekki svoleiðis.. en annars er ég á leiðinni í klippingu á morgunn bara svona að reyna lappa aðeins upp á mann og svo kemur hitt bara seinna...

 

 



En já annast er ég að fara að vinna í íþróttaskóla KA í sumar ef þið vissuð það ekki, svo var ég að taka að mér að þjálfa frjálsar á Svalbó citty tvisvar í viku í sumar, ekki má gleyma  að ég verð að sjálfsögðu í 10 -11 en bara á  aðra hverja helgi. Og svo verð ég að gera neglur á alla sem vilja og ef  ég hef tíma og vonandi líka sjálfan mig (ekki veitir af).

 

 



Og annað sem ég vildi deila með ykkur að ég ætla ekki að djamma nema þegar það eru djömm..... þá meina ég að ég er hætt þessum tilganslausu djömmum sem erum bara til að djammma.... þetta segi ég allavega núna svo emur þetta allt í ljós....  

 

 



Ok ég skal hætta að tuða  (bróðir minn sagði að ég talaði of mikið... skil ekki neitt í honum)

 

bara eitt enn ég er búin að ná öllum prófunum sem ég er búin að fá út úr:P:P:P

Kveðja

Línberg


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.05.2006 23:44:03 / edda

5 dagar :)

Vildi bara deila með ykkur að ég á bara 3 próf eftir:P

Ég er nú samt engavegin að nenna að læra fyrir þessi próf  en ég get hugað mig við það að ég er búin á fimtudaginn... og það verður nú haldið upp á það:P:P:P

Í staðin fyrir að vera að læra núna um helgina er ég búin að vera að pakka niður og þrifa íbúðina mina því ég er buin að lána hana næsta mánuðin…. Þannig að ég er á götunni. Ég finn mér bara eitthvað rúm til að kúra í…... það hlítur eihver að vilja fá mig upp í rúm til sín;)  

Bogga mín byrtist líka surpræs til mín í dag.... ég var bar að labba út í bíl og þá var hún á bílaplaninu mínu... ég stoppaði og horði og skildi ekki neitt. En hún kom og hitti Ástu og Nonna en þau voru í sumarbústað upp á Apavatni (Hvar er það?). Þau fóru að skoða Gullfoss og Geysir. Ég þori eiginlega ekki að segja það en það á ég eftir að gera.... ég bý ekki á Laugarvatni, en ég er að bíða eftir að ég finni mér mann til að fara með mér að skoða þetta:S:S:S.. ...

Já og í gærkvöldi fór ég og Harpa í heimsókn í bústaðinn til Ástu og Nonna enda tími til kominn að ég hitt þau þar sem ég hef bar ekki farið og gist í herberginu mínu í borginn svo lengi. En ég ætla nú að breyta því fljótlega og gista í herberginu mínu í viku. Var ég búin að segja þér það Ásta???

En jæjja ég held ég ætti að hætta að tala um ekki neitt og fara að læra:):):S

Kveja

Edda Línberg


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.04.2006 21:20:41 / edda

:)

Góða kvöldið...... já ég veit að ég er að farast ég er svo dugleg að blogga. Já það er nú mikið búið að ske síðan ég bloggaði síðast en ég nenni nú ekki að segja frá því þar sem það eru hvort sem er svo gamlar fréttir.

 

En allavega er ég núna á laugarvatni og er að reyna að koma mér í gírinn til að læra en er ekki alveg að takast það.. er meira bara að deyja úr stressi og vorkenna mér hvað ég er að fara að vera dugleg dæstu daga.

 

Allavega kom hún Bogga til mín í gær og við sátum við aðalega bara að borða.... jú  spjölluðum reyndar á meðan um margt og mikið, Bogga var búin að kaupa ferðagasgrill til að koma með svo við gátum grillað... og var það ekki neitt smá gott.  Og ekki nóg með  það heldur gaf hún mér risa blómvönd í sumargjöf...... ekki neitt smá flottan.......sá ég að ÉG þarf sko ekki á karlmanni að halda, sérstaklega ekki þegar maður á svona góða vinkonu.

 

Jæjja en hún Bogga mín yfirgaf mig nú samt eftir að hún var búin að klippa hana Katrínu mína eins og Sollu stirðu (gaf henni líka Sollu stirðu buff í sumargjöf) því hún Bogga mín þurfti nú að fara að djamma í bænum. Hún var nú samt svo elskuleg að skilja eftir ástarsögu handa mér til að horfa á..... Átti ég að horfa á ástarsögu ein...helló en ég lét mig nú hafa það og vitið menn ég grenjaði bara og varð að horfa á hana aftur og aftur sem sagt horfð á hana tvisvar um kvöldið eða nóttina og svo aftur þegar ég vaknaði..... Bogga var ekki alveg að fatta hvað húna var að gera mér.... en þetta er æðisleg mynd en ég mæli ekki með að þið horfið á Pride and Prejuduce ef þið hafið engan til að til að kúra hjá.

 

En jæjja ætla ekki að segja meira núna... ætli ég fari ekki bara að horfa á þessa ástarsögu aftur ein..... mér finnst hún æði

 

Kveðja

Edda Línberg  



 



 



 



 



 


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.03.2006 22:15:57 / edda

hæ aftur

Góða kvöldiðJ

 

 



Ég veit að ég er ekki sú duglegasta að blogga en svona er bara að vera slúbert......

 

 



Það sem er búið að gerast hjá mér er ekki mikið.... það var árhátíð hjá okkur síðasta fimmtudag  og var vatnið að vana við höndina. Það var mjög gaman en ég fór heim um tvö leitið að óskiljanlegum ástæðum.. þið ættuð kannski að spyrja Hörpu Helga um ástæðunaJ

 

 



Annars er það að frétta að ég er að klára að taka penisilínið mitt sem ég fékk af því að ég fékk ógeðis strepptakokka (kann ekkert að skrifa þetta), en þegar ég kom heim af árshátíðinni hjá HA þá var ég með 39,6 stiga hita og samt fór ég suður og ætlaði mér í skólann á mánudeginum en vitið menn það gat ég nú ekki og fór ég á endanum til læknis og kom í ljós að ég var með þetta ógeð.... en núna er ég orðin frísk og þarf að halda mér við vatnið í nokkra saga í viðbót.

 

 



Annars er ég búin að ráða húshjálp heima hjá mér í viku en hann Guðni kom í heimsókn að hitta dóttur sína... hann er allavega búin að þrífa bílinn minn og svona....Katrín Línberg var geggjað ánægð að sjá hann en hún vissi ekki hvaða dag hann kæmi og var þetta svona surprise .... þannig að ég er flutt á vistina í viku. GeggjaðJ

 

 



En allavega ætla ég að hætta núna

                                                          

Bless þangað til næst

 

 



Kveðja

Línberg  


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.03.2006 12:07:37 / edda

.....

Góðan daginn

Vildi bara deila með ykkur að ég og áfengi eigum ekki saman og mig langar ekkert að setja það inn um mínar varir.... en það vill nú samt svo skemmtilega til að ég er á leið á árshátíð í kvöld og eins þá held ég að ég muni hafa vant við höndina..

Svo næsta fimmtudag er ársátíðin í skólanum mínum og þá verur vatnið endurskoðað.......:S:S:S

 

 



Annars er þessi vika bara búin að vera hrein snilld og er ég búin að skemmta mér geggjað vel.... ég hefði nú samt vilja fara oftar upp í fjall en ég get ekki verið á mörgum stöðum í einu... þó svo að stundum haldi ég það.. en ef einhver sér síma upp í fjalli þá má hann alveg láta mig vita því að ég TÍNDI honum, alveg típist ég ...... ég á ekki peninga fyrir nýjum.... en ég náttúrulega bara bjó þá til. Og má fólk reykna með að ég verið geggjað pirruð næstu daga því ég tók þá ákvörðun að kaupa mér Sony Ericsson síma og ég kann ekkert á hann og ég er svo íhaldsöm og von Nokía að ég á eftir að verað nett pirruð held ég....en síminn er samt geggjað flottur.:):)

 

 



Ég er bara þreytt núna... nei ég var ekki á djamminu í gær ég var í vörutalningu í 10-11 og er núna að fara að gera neglur......

 

 



Kveðja

Línberg :P:P 


» 5 hafa sagt sína skoðun

26.02.2006 22:55:34 / edda

Skíðavika

Góða kvöldið

Núna er ég kominn heim... eða þar að segja norður. Það vill nefnilegt svo til að það er komið að skíðaviku í skólanum.. og auðvita missir maður ekki af henni. Ég, Harpa Helga, Jói Sokkur og Katrín forum saman norður. Eða við forum með Jóa Sokk…. Ég nenni nefnilega ekki að keyra aftur suður þannig að ég reddaði mér fari norður og ætla sko að fljúa til baka.

Það er nú samt eitt vandal mál og það er snjór……. Það mætti allavega alveg vera meir snjór en við látum það ekki á okkur fá og ætlum allavega að skemmta okkur geggjað vel.

Það fyrsta sem ég gerði þegar ég kom í bæinn var nú að fara að heimsækja uppaháldsystir mina en hún er greyið upp á sjúkrahúsi... svo fórum við heim og kelltum okkur í geggjað gott froðubað sem var geggjað þar sem við höfum bara sturtu á lagarvatni……..svo núna er sú litla kominn upp í rúmm og sofnuð og ég era ð spá í að gera það sama…

Svo eru það fjallið á morgunn….

Kveðja

Línberg


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.02.2006 04:14:52 / edda

:)

.

Ég á afmæli í dag


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.02.2006 01:15:44 / edda

1 dagur

Ég veit að ég hef ekki verið sú duglegasta að blogga en það skiptir engu máli.

 

 



Í gær var kvennaferð hérna hjá okkur og tókst hún geggjað vel og skemmti ég mér mjög vel. Það var  rokk/pönnk þema og klæddum við okkur náttúrulega þannig... vel túbberaðar.. Við fórum í klifur, í body-jam tíma (veit ekki hvernig er skrifað), allskonar leiki og svo fórum við í sal þar sem við drukkum nógu mikið og þangað komu svo Einar og Gunni og héldu réttu stemmingunni með gítarleik...

 

 



Svo var líka kallafeð á sama tíma en það er nú kannski ekki frásögu færandi nema að þeir tíndu einum nöktum manni á Selfossi og fundu hann svo upp á löggustöð þar sem þeir þurftu allri að skrifa undir til að hann myndi losna....leitt að hafa misst af nöktum köllum það er nú ekki oft sem maður sér svoleiðis skal ég segja þér... en hvað get ég gert í því... ekki mikið held ég.

 

 



Núna eru bara 1 dagur þangað til að ég verð 24 ára gömul..... já ekki 20 ára heldur 24 ára og bara 1 ár þangað til ég verð 25 ára. Og ekki er það verra að ég fer svo norður á laugardaginn og verð í heila viku........ við erum nefnilega að fara í skíðaferð hérna í skólanum en vandamálið er að vísu að það er enginn snjór... en það er í lagi því þetta reddast er það ekki? Ég held það. Ég og Harpa Helga mín ætlum að vera í íbúð s og við vorum í fyrr og hafa það geggjað gott og skemmta okkur vel. Svo verður náttúrulega farið í fjallið og Katrín Línberg fer með og æfir sig á skíðum.... .þannig að ef einhver heyri öskur í fjallinu er það mjög líklega ég að segja henni að beygja því hún vill það ekki.... þá stoppar hún... svo fer hún bara á fullri ferð niður brekkuna.. ég vildi að ég hefði nú þorað þessu þegar ég æfði skíði....

Og svo eitt enn til að minna mig á það hvað hún er orði stór... hún er kominn með lausa tönn... ekki lítið hún fer bara bráðum að detta. Svona líður tíminn flótt.. munm bara ð nóta hans

 

 



Kveðja

Línberg  


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3